Valdís is the Fatafrik
Klukkan
10.11.2007 17:02:38 / Valdís

dagur Hjördísar

Blinking Text

Blinking Text

Blinking Text

 

 

Blinking Text


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 19:25:23 / Valdís

PartyParty

Já Halló allir saman :haha: það er svoltið mikið búið að gerast síðan síðasta blog :P

Skólinn er til dæmis byrjaður, brjálað að gera í honum auðvitað, allir kennararnir að skella á prófum og einhverjum leiðindum, en þar sem þetta á ekki að vera leiðindar blog þá ætla ég ekkert mikið að tala um skólann:!: :)

 

1 september var ljósanótt í Reykjanesbæ. Ég og Helena skelltum okkur þangað með Gunnari og Krissa. Við týndum þeim nú samt mjög fljótlega :P haha en við hittum líka Ívar, frænda Helenu og fullt af vinum hans :) fórum í eitthvað lítið party með þeim og fórum svo bara niðrí bæ að djamma, frekar lítill bær samt… við söknuðum svoltið Pizza Pronto :P en því var alveg bjargað. Ég hitti fullt skemmtilegu fólki sem ég var að vinna með í Hagkaup :D þannig að þetta var bara æðislegt kvöld… við þurftum reyndar svo að labba frá Keflavík til Njarðvíkur, sem tók ekki nema tímana tvo… svo hringdi Helena í Eyþór og hann náði í okkur um svona 6 um morgunninn minnir mig.. gaman að því :P

 

Svo 2 september átti Helena mín afmæli.. já hún er officially orðin gömul.. 19 ára .. össössöss:!:

Hún átti samt bara mjög góðan dag. Hún hélt fyrir nokkrar vinkonur sínar matarboð sem var bara mjög gaman og svo skelltum við okkur í Leysertak:!: sem er mjög skemmtilegt:!:

 

Svo kom busaballið hjá Borgó, sem mér fannst vera frekar lélegt:!: ég var reyndar edrú en ég fór líka edrú í fyrra eða eitthvað og þá var bara mjög gaman :S veit ekki hvað það var en þetta var í fyrsta skiptið sem þetta var haldið á Broadway.. er alltaf á Nasa .. veit samt ekki, það var bara ekki beint mikið stuð þarna.. maður er líka einhvern veginn orðin of gamall finnst mér í að fara á busaball… donno ..

 

Þar síðustu helgi fórum ég og Helena í sumarbústað :D með Ívari og vinum hans.. sem við hittum á Ljósanótt. Ógeðslega gaman :D:D:D ég tók nokkrar myndir sem verða settar einhvern daginn á netið :D þetta var bara sjúklega gaman :D vorum mest allan tíman bara í heitapottinum.. það var svoltið rosalega mikið vesen fyrir mig að redda fríi í vinnuni en það var þess virði :D daginn eftir þegar við vorum að fara heim, þá vorum ég og Helena dáltið mikið að flýta okkur af því að við vorum að fara að vinna en við rétt náðum því. Komum heim um 20mín í 6 og áttum að vera komnar í vinnuna 6 …. Svo að við bara rétt náðum :P

 

Í síðustu viku fór ég í leikhús á leikritið Killer Joe í Borgarleikhúsinu.. sem var algjör snilld:!: mæli virklega með henni.. bara geðveik sýning:!:

 

 

Svo síðustu helgi fór ég í innfluttningsparty hjá Auði og Telmu, af  því að þær voru að flytja inn í íbúð í Keflavík:!: það var nú ekki mikið af fólki þarna og enginn að drekka nema ég sem var orðið mjög skrautlegt:!: svo að ég Helena og Lilja fórum og hittum Gunnarr og Krissa.. af því að áfengið þeirra var ennþá í skottinu á bílnum mínum frá Ljósanótt. Eftir það ætluðum við á Klúbbinn af því að Ester vinkona hringdi í mig og vildi hitta mig þar. En þegar við komum var búið að loka af því að það höfðu verið einhver slagsmál þarna inni og þeir höfðu bara rústað staðnum. Hjördís þekkti víst annan gaurinn þarna:!: þannig að við fórum bara heim :)

 

Ég var að fá mér MySpace síðu :D:D það er að vísu ekki komið mikið á hana en smá :)
www.myspace.com/fatafrikid .. crazycrazy :P jájá

 

Herðu:!::!::!::!::!::!::!::!: svo er það DANMÖRK :haha::haha::haha::haha::

Í nóvember er Reunion í skólanum:!: get ekki beðið, fer 15 nóvember og verð til 18/19 nóv :D þetta verður sko bara aðeins of gaman:!: Davíð og Bragi fara líka:D það eru bara 50 dagar í þetta :D:D:D:D:D:D:D

 

En jæja þetta er bara komið ágætt :D þangað til næst :)

 

Valdís


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 20:38:10 / Valdís

AK/Versló/GayPride

Halló :D jæja nú hef ég mikið að segja :D frá síðasta bloggi hefur doltið mikið gerst :D Helena er komin heim :D og Helen líka :D svo að við og Auður og Telma fórum saman í Road trip til Akureyrar :D
Við komum fyrst við í Smáralindini og við keyptum okkur nammi og eitthvað. Svo fórum við í Veröldina okkar til að sækja  Telmu. Við lékum okkur aðeins fyrst :D ógislega gaman :D við fórum á bílnum mínum, hann var bókstaflega fullur!við stoppuðum í Staðarskála og fengum okkur að borða :D
Þegar við komum til Akureyrar fórum við heim til ömmu Helenar og gistum þar. Daginn eftir fórum ég og Helena út um allt :D fórum í Jólahúsið og listigarðinn og kirkjugarðinn og niðri bæ :D bara rosa gaman :D pöntuðum við pizzu og fórum svo bara að djamma :haha: hittum nokkra gaura :D Helen reddaði sér einum kæró :D Hann heitir Kristján og býr á AK.... tveir af þeim komu svo með okkur heim og vorum bara að tala saman alla nóttina... Telma og Auður fóru reyndar frekar snemma að sofa, ég fór svo fljótlega eftir að þær fóru...
  svo alla leiðina heim hlustuðum við á Backstreet boys og Britney Spears :D haha geggjað gaman :D 

Um verlunarmannahelgina var ég með matarboð hérna :) bara voða gaman :D fjölskyldan fór til Akureyrar, þar sem Hjördís hitti gæja :D jájá gaman að þessu :) annars var ég eiginlega að vinna, alla helgina.. það voru ekki allir sáttir við mig í vinnuni, af því að það átti að vera lokað alla helgina en þar sem ég bað um að vinna þá var opið :P 

Á Laugardaginn var GayPride :D ég var að vinna allan daginn, svo þegar það var búið fór ég með mömmu á kaffihús, fékk mér kaffi :P ojj :P svo um kvöldið fór ég með Helenu niðrí bæ :D rákumst á Braga og Jóhönnu :) allavegana við vorum í sambandi við Ívar, frænda Helenu sem var að fara á Nasa. Anyway, við hittum hann og hann sagði okkur bara að koma fremst í röðina :) það var svona hálftíma löng röð svo að við vorum bara heppnar :D þeggar við fórum svo inn þá átt maður bara ekki heima þarna:!: bara gay fólk þarna, frekar skrítið, ég var meira að segja spurð hvort að ég og Helena værum saman og eitthvað :P Not diggin it :P samt bara gaman, frekar þröngt .. en gaman :D 

ég og Helena


  Ívar sætasti, Helena sætasta og ég :)

 

Svo næstu  helgi er Menningarnótt :D spurning hvað maður gerir þá:!:Jæja þangað til næst :P hvenær sem það verður.. haha :haha: 

Blinking Text


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 00:52:28 / Valdís

Helena eftir viku

Hæhó :D talað um að það hafi verið crazy mikið að gera :D ég kom heim frá Tenerife fyrir tvemur vikum eða eitthvað , svo að er alveg kominn tími til að blogga, eins og alltaf... ég er alltaf að vinna :D reyndar bara á kvöldin.. og svo komur Helena eftir viku:D:D:Djejj :D can’t wait :)  hún er núna búin að vera í tæpt ár. Þetta er búið að líða óvenju hratt, reyndar fyrri helminginn af árinu var ég í Danmörk :D ohh vá get bara ekki beðið :DSvo á pabbi afmæli á morgunn. Kallinn orðinn 48 ára:!: :haha:
Svo 16 júli byrja ég aftur í Boot Camp :haha: Jejj, það er bara allt að gerast:!:
Um helgina fórum ég og Hjördís í útilegu. Við ætluðum á Laugarvatn eða eitthvað en á miðri leið, þegar við áttuðum okkur á því að við höfðum tekið vitlausa beyju og við nenntum ekki að snúa við, þá ákváðum við bara að fara til Akureyrar :Dhaha... þegar við komum þangað á tjaldstæðið þá var okkur sagt að við komust ekki inn af því að það var 18 ára aldurstakmark, og þar sem Hjördís litla er bara 15 ára þá komst hún ekki inn, ég hefði getað tjaldað bara ein þarna en ég gerði það ekki :P svo að við gistum bara hjá frænda okkar :) það var líka alveg fínt. Myndir frá útileguni og frá Tenerife koma bráðum :)     Valdís

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 18:42:25 / Valdís

Fréttir frá Tenerife

Ég er núna búin ad vera í viku à Tenerife og ég er ad fíla thad ;) haha :haha: thad er sjúklega gott vedur hérna og bara aedi ;) ég er alveg ad verda brún :haha: er búin ad versla pínu:lol: og er búin med peninginn sem ég kom med út :lol::lol::lol: vid erum búin ad tékka á skemmtistodunum hérna og thad er alveg ljóst ad thad er adeins einn skemmtistadur hérna sem er í lagi :) Yates heitir hann og er geggjadur :D ég er sko ad fýla hann :D eini stadurinn sem er svona snyrtilegur og gód tónlist og saetir stákar og svo framvegis.. haha :) thetta er allt annad en Lanzarote og Costa del sol, munurinn er ad ég á aldrei eftir ad koma hingad aftur :!: thad vantar allt fólk hingad, annad en á hinum stodunum.. ég er samt ekkert ad kvarta :P af thvi ad ég er í útlondum en ekki thid :klikk::klikk::klikk::klikk: thetta er skárra en ísland :P ekki alltaf sama rigningin... í dag leigdum vid bíl sem voru mistok. Pabbi lagdi óvart í óloglegt staedi svo ad thegar vid aetludum ad fara í morgunn thá var bara enginn bíll8|8|8|8|8| og vid thurftum ad borga logguni 10.000 kall til ad fá bílinn aftur, meira en vid borgudum fyrir bílinn sjálfan:!::!::!::!:  vid keyrdum eitthvad um eyjuna og thad var bara ekkert ad sjá:!: fórum í regnskóg sem er hérna og hann var bara ekkert merkilegur :P svo ad naestu vikuna á bara ad sóla sig, versla adeins meira af dóti og koma svo gedveikt brún heim :) thá verd ég sko sátt ;););) sé ykkur eftir viku :haha:

Valdís


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 23:29:07 / Valdís

Gleiðlegann Mánudag

Gleðilegann Mánudag allir saman :) ég hafði bara alls ekkert að gera í dag:!: ég þarf að biðja um meiri vinnu eða sækja um nýja vinnu... ahh vesen:!: af því að ég er komin í sumarfrí :D skólinn er búinn, síðasta prófið var á föstudaginn.. og áðan sótti ég um nýjan skóla.. FG og FÁ gat ekki gert uppá milli, en kanski fer ég aftur í Borgó... kemur bara í ljós . . .
Helgin var samt sniiiiiiild :D Eurovision og kosningar :D ég horfði reyndar á hvorugt en þetta var samt geðveikt kvöld. Það var matarboð heima hjá mér... svo seinna hrindu Þórarinn, Biggi og Pétur og þeir komu í partyið sem foreldrar mínir héldu. Og þeir joinuðu bara, svo að þetta var bara geðveikt. Biggi og Þórarinn eru mjög líklega að fara að vinna hjá pabba í málningunni :haha: það verður skrautlegt :) það var farið á trampolínið sem er mjög skondið þegar maður er fullur. Svo komu Hjördís og Agla að partyast með okkur. Um 2leitið fór gamla fólkið og þá komu Björk, Gunnarr og Krissi og það var farið í SingStar :haha: alltaf gaman í því :D það voru ekki teknar neinar myndir af því að Pétur var með myndavélina mína...  
 Helena var hérna í síðustu viku, hún var hérna í 2 vikur, æðislegt að sjá hana aftur :D en hún fór aftur síðasta miðvikudag... Hún kemur aftur 3 júlí, eftir einn og hálfan mánuð svo að það verður geðveikt fljótt að líða :P  Svo er þettta síðasta vikan af Boot camp :!: þetta er bara að verða búið :( en það þýðir líka að ég er að fara til Tenerife eftir 2 vikur :haha::haha::haha: jejj :haha: svo að ég verð geðveikt brún og með gat í naflanum.. já ég fékk mér líka gat í naflann um daginn :lol::lol: bara alllt að gerast í Valdísar landi :)  Valdís   c”,)

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 00:12:42 / Valdís

Fyrir Rannveigu

Allir að svara! Þótt að ég viti að þið nennið því ekki!

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið?
2. Hve gamall/gömul ertu?
3. Frátekin/n eða einhleyp(ur)?
4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?
5. Dreymir þig á nóttunni?
6. Hefuru séð lík?
7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?
8. Ertu að fíla Bush?
Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.
9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?
10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því.    Hvað myndi það vera?
11. Treystiru lögreglunni?
12. Hlustaru á kántrí?
13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?
14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari mínu, hvað myndi það vera?
15. Myndiru deita mig?
16. Í hverju sefuru?
17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda?
18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig?
19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag?
20. Hvað finnst þér best um mig?
21. Er ég hot?
22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?
23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?
24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig.
25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér?

Valdís :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 19:05:17 / Valdís

Brjálað að gera..

Hæhó, ég held að það sé komin tími á góðu bloggi :) er ekki búin að blogga núna í tæpann mánuð.. :P en það er fullt búið að gerast hjá mér... ég er komin með nokkrar myndir frá Glæsilega Glæsiballinu sem var í Borgó í síðastamánuði ;) ;)

 

 

Anna Sigga

Rannveig og Inga sætastar

Helga Braga var veislustjóri

Edda Rós

Dísa og Jói

Kaktus töffari var kosinn flippari Borgó

 ég og Óli

ég og Sóley 

Ég fór í grímuparty hjá Braga um daginn, svoltið síðan.., ég var hippi.. haha :haha:

haha

 

Síðasta föstudag fórum ég og Hjördís litla systir mín á X-Factor. Sem var bara sniiiiild :D þetta var geðsjúkt:!: við ætlum aftur á föstudaginn á sjá útsitlin:!::!::!::!::!::!: ójá þetta var geggjað :D það var bannað að taka myndir en ég fór ekkert eftir því og tók “nokkrar” myndir :P þetta var bara geðsjúkt :Dég er þarna í miðjuni 

vá gaman hjá mér

Hjördís og Alan

Halla kynnir

dómararnir

Hara, Guðbjörg og Jógvan

Þær eru bestar :D

töffarar

Á þriðjudaginn átti Brúnó litli sætasti þriggja ára afmæli :D litla krúttið mitt ;) ég og Hjördís misstum okkur aðeins í búðinni og keyptum súpermann dúk, diska, glös, servétur, blöðrur og eitthvað dót fyrir “afmælið” Bónó og Helena komu í afmælið :) það var bara geðveik veisla :haha:

þarna varð hann eins árs

tveggja ára

sætastur, þarna varð hann þriggja ára

svona var hann þegar við fengum hann...

 

Síðasta mánudag byrjaði ég í Boot camp :!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!:  það er bara skemmtilegast í heimi:!: fékk reyndar sinaskeiðabolgu eftir fyrsta tímann en ég er fyrst núna að jafna mig eftir hana :)   

Ég hitti frænda minn i fyrsta skiptið um daginn. Hann heitir Ingólfur Breki. Hann er algjört krútt :haha:

 

þangað til næst... hvenær sem þaða verður :)

Valdís


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 11:24:03 / Valdís

Borgarleikhúsið

Á Miðvikudaginn sýndum við í leiklistarhópnum í Borgó leikrit í Borgarleikhúsinu um Netið :D
Borgarleikhúsið valdi þrjá skóla til að taka þátt í þessu; Borgarholtsskóla, Hátegsskóla og Listaháskólann. Á Mánudag, Þriðjudag og Miðvikudag fengum við bara frí í skólanum og vorum í Borgarleikhúsinu að æfa. Svona 10 tíma á dag. Geðveikt gaman :D svo var sýningin á öllum leikritunum  á miðvikudaginn og vá hvað þetta var gaman :D:D:D
Sýning Hátegsskóla var um barnaperra og það slæma sem gerist á netinu, ég var ekki alveg að fatta hjá listaháskólanum, þetta var bara furðulegt en okkar var langskemmtilegast :haha::haha::haha: við vorum að gera það jákvæða og neikvæði og allir hlógu og hlógu, við vorum bara með marga skettsa og þetta tók svona 25 mínútur. ég lék ólétta konu  :D sem var að fara að eiga, en maðurinn minn missti af fæðinguni af því að hann var of upptekinn í tölvuleiknum Bubbles :D þetta var bara sniiiiild :D svo í einu atriðinu var nördi að reyna við einhverja gellu og hann talaði bara nördamál eins og í wow... :D svo vorum við með msn spjall pop up glugga, tölvuorðabók, svo voru tvær manneskjur sem kynntust á netinu og ákváðu að gifta sig. En þegar þær hittust þá sáu þær að þær voru báðar kvenmen, haha :D þetta var snilld :D svo vorum við líka með Ebay og þar var gæi sem seldi líf sitt fyrir 25 milljónir, og þá var gaurinn sem keypti það bara sá gaur :D æi vá:!: þetta var bara sniiiiiiilld :D leitt fyrir þá sem komu ekki, það var nú samt nánast fullur salur þannig að þetta var bara æðislegt :D

Hey Rannveig á afmæli í dag :D og Lára líka :D Rannveig 20 ára og Lára 17.... bara stórar stelpur :haha: til hamingju stelpur ;)

úr afmælinu í fyrra

 

Valdís


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 00:07:59 / Valdís

Glæsiballið...

hæhæ herðu, á fimmtudaginn var árshátíðin hjá Borgarholtsskóla eða Glæsiballið og það var alveg hreynt glæsilegt :D Helga Braga var veislustjóri og svo kom Bubbi að spila og Bjarni hellisbúi var með uppistand og svo kom DJ Brynjar Már að DJast, þetta var bara svaka stuð :D
það var geðveikt fínn matur og kennararnir voru að þjóna til borðs, þetta var bara æðislegt.

Þórarinn, ég, Rannveig og Stella

síðustu helgi fór ég í grímuparty hjá Braga, ég var Hippi :D geðveikt gaman :D nema ég missti mig aðeins og þetta endaði bara ekki vel hjá mér:!:
svo í næstu viku sýnum við í leiklistini "netið" í Borgarleikhúsinu, langar eiginlega ekki að gera þetta en þetta verður búið bráðum...

bara stutt blog núna...þangað til næst ;)

Valdís

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 19:32:31 / Valdís

Nýtt Blog?

Blehh vá hvað febrúar er búinn að vera erfiður:!: get ekki beðið eftir að hann klárist :cry:Allrigth, ég er búin að vera að læra eins og motherfucker fyrir söguprófið sem ég var í í dag:!:  þurfti að læra allskonar fáránleg nöfn eins og Mínós, Aristófanes, Heródóteos, Hippókrates Aristótales og svo framvegis.. og svo hverjir þeir væru, hvernig þeir dóu og það mátti nottla ekki rugla þeim saman og vá hvað þetta var fáránlega erfitt próf:!: svo er náttúrufræði og stærðfræðipróf á næsta leiti:!: kennararnir eru bara að missa sig í að prófa okkur:!: svo er það Glæsiballið eða árshátíðin í Borgó í næstu viku :D jejj :D og ég ætla að fara :D fór ekki í fyrra en ég ætla núna ;) ég er í leiklist sem er bara ógó gaman :D er í tíma á mánudögum og þeir eru orðnir doltið langir hjá mér:!: ég er til hálf 10 í skólanum:!::!::!::!: um kvöldið .. en það er samt geðveikt gaman :D við erum að gera leikritið Fríða og Dýrið :D  samt ekki eins og teiknimyndin... erum ekki alveg búin að ákveða hvernig þetta verður, en geggjað gaman samt :D svo erum við líkað að fara að gera leikrit fyrir Borgaleikhúsið, það er einhver þemamánuður hjá Borgaleikhúsinu... þau buðu þremur skólum til að taka þátt í þessu og við erum að fara að gera leiksýningu um ”netið” sem verður mjög áhugavert... þau buðu Listaháskólanum, hátegsskóla og Borgarholtsskóla, þau ætluðu að bjóða mh en hættu við :D svo að það verður mjög áhugavert hvernig þessar leiksýningar verða :D En jæja þarf að fara... Valdís

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 23:42:25 / Valdís

Geggjað ball

Hæhó :) það eru núna liðnar 2 vikur síðan ég bloggaði síðast svo að ég held að það sé kominn tími til að blogga á ný :D það er voða lítið búið að gerast hjá mér síðustu daga :P  á fimmtudaginn var ball hjá Borgó… nýársballið eða eitthvað :P ég var eiginlega hætt við að fara en þá sannfærði Rannveig mig um að koma :D og ég er geðveikt ánægð með það :D af því að þetta var sniiiildar ball :D:D:D Veðurguðirnir voru að spila, þeir eru nottla bara snillingar :haha::haha::haha: ég fór með Stellu í fyrirparty hjá gellu sem heitir Guðný, vinkona Rannveigar, og þar hitti ég Rannveigu, Láru og Dísu, sem voru með mér í kórnum :D þetta var bara svaka stuð.. ég var edrú að því að ég þurfti að keyra .. sem var bara allt í lagi:P ég keyrði svo Stellu og gaur sem heitir Jói, sem er algjör snillingur… þau þurftu algjörlega að vísa mér veginn frá Breiðholti að Nasa.. tek það fram fyrir þá sem ekki vita að ég er áttavilltasta manneskja í geimi:!::!::!::!::!: það geta margir staðfest það:!: Þetta ball var bara geðveikt:!: Ingó í veðurguðunum sem var líka í Idolinu er bara æði sko:!: svo að þetta var bara sjúklega vel heppnað ball :haha:

 

 

 flott



 

Rannveig, Jói, ég og Stella



Í dag var ég bara eitthvað að þvælast með pabba.. ég var að kaupa fullt af málningardóti, keypti striga og bara helling af málningu svo að ég get farið að mála aftur :D jejj :haha:

Omg!! Ég var í stærðfræði prófi um daginn :D ég hef btw ALDREI náð stærðfræðiprófi held ég:P en ég fékk 9,1 í þessu :D omg hvað ég er ánægð :D:D:D ég er loksins að ná þessu :haha: kominn tími til :D

En úr einu í annað … leikurinn, omg sko!!! Ég er búin að vera að horfa á nokkra leiki núna,,, og þvílíkur skandall með danmörk!!! Ég var sko þokkalega viss um að við myndum vinna dani:!: og þá ætlaði ég sko að hringja í liðið í skólanum :D en neinei munaði einu fkn marki!!! Ég er sko ekki sátt….  En við komumst í áttunda sæti, það er skárra en sumir lentu í :P

En jæja þangað til næst :)

Valdís


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 18:08:21 / Valdís

fine... Im back

Halló... er búin að fá þónokkrar kvartanir yfir því að ég sé að hætta með þessa síðu... og hef þá hér með ákveðið að halda áfram með hana, ég nenni ekkert að vera að skrifa blogg á hverjum degi, en skal gera mitt besta :)

Það er samt ekkert voðalega mikið búið að vera að gerast hjá mér...

Skólinn er í lagi,tvö próf í næstu viku, svo að það er erfitt að slaka á :P sögu og stærðfræðipróf, held samt að mér eigi alveg eftir að ganga bara ágætlega í því ;) er alltaf að læra:P er að vera nörd :) haha :) neinei... svo í kvöld er Morfís... Borgó vs Kvennó, er að spá í að kíkja á það, fer svo í kvöldskólann hálf 8, jámm ég er líka í kvöldskóla, af því að íslenskan komst ekki á stundartöfluna mína :S sem sökkar, er ekki að nenna að fara í skólanná kvöldin.. samt alveg ágætt af því að ég þarf ekki að taka lokapróf..veit ekki afhverju en ég er mjög ánægð með það :D

Í mars er ég kanski að fara til Danmerkur :D Mari og Rune ætla að halda uppá afmælið sitt,  svo að margir úr skólanum ætla að koma :D svaka stuð að hitta þau aftur :D

En jæja Matúr...

Valdís


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 22:09:14 / Valdís

hætt

ég er hætt með þessa síðu í óákveðinn langann tíma... takk fyrir :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 21:10:19 / Valdís

jejj

:haha::haha::haha::haha:Gleðileg Jól :haha::haha::haha::haha:

:haha::haha::haha::haha: og :haha::haha::haha::haha:

:haha::haha::haha::haha:Gleðilegt Nýtt Ár :haha::haha::haha::haha:

:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8